heillandi smásögur úr daglega lífinu

-Kristjana segir góðar sögur-

29 mars 2009

Já bara fínt að vera hluti af bloggheimum

Já, ég hlýði mínum stórabróður og fer að blogga.
Bara stutt í dag, ég er nefnilega á bókhlöðu Íslands og nýt þess í botn að sitja og pæla í því hvað ég eigi að gera. Það er ekki svo mikið að frétta, ekki þannig neitt. Ég er búin að vinna núna í tvær vikur á Iðjubergi sem er vinnustofa og dagþjónusta fyrir fólk með þroskahamlanir. Það er ofsalega fínt að vinna þar og hentar vel með vinnunni á sambýlinu. Verst að skólinn lendir svolítið í þriðja til fjórða sæti en hvað um það. Það reddast, enda ekki nema um mánuður eftir af honum og þá er ég orðin kennari að 5/6 hluta. Stefni svo á að klára kennarann næsta haust.
Vá hvað ég er að stefna í spennandi bloggfærslu. Kannski að ég hætti þá bara núna og dembi mér í að lesa um flæði og algleymi í áhugamálum unglinga.

verð skemmtilegri næst

11 febrúar 2009

Kannski að maður fari að gefa þessu líf aftur.

Ég hugsa að það væri ekki vitlaust að fara að blogga aftur. Til að vera með. Segja frá hugleiðingum mínum um skólastarfið og þess háttar. Og æfa mig í innslætti. Ég ætla að minnsta kosti að hugsa málið.

09 júní 2008

---

Smá svona bloggfærsla. Ég er að Akureyri, þar sem ég ætla að vinna í sumar og sveifla tánum með Magnúsi og fara á glerártorg og jafnvel út í kjarna eða á Dalvík.
Svo er ferð austur á Húsavík í hvalaskoðun með fagmönnum á áætlun sumarsins líka.

Annað er ekki svo mikið ákveðið. Eða jú eiginlega, það er allt sumarið planað...hver einasta helgi! Um næstu helgi er suðurferð á dagskrá vegna útskriftar okkar mæðgna. Þannig að elsku borgarbúar, við sjáumst sennilega á rallinu.

ástarkveðjur,
Stjana

19 maí 2008

Verkefnin sem kláruðust

Í dag fannst mér ég stíga stórt skref í mínu lífi.
Ég fór með lokaritgerðina okkar Sigurbjargar í prentun og lét prenta átta eintök.
Þegar þær voru tilbúnar, fór ég á skrifstofu félagsvísindadeildar og skilaði henni inn í þremur eintökum.
Fulltrúarnir á skrifstofunni brostu tóku við eintökunum og óskuðu mér til hamingju. Og ég fékk gleðisprengju í magann.

Mesta gleðin er kannski yfir einkunninni okkar. Sem er 9...

13 maí 2008

Talent ársins 2008!!!

Ætli þau hafi fengið inni í "so you think you can dance"????

12 maí 2008

próf lóf hóf skóf dóf



Ég vildi að ég væri jafn hress og þessi gaur!! Eitt próf eftir, það er á miðvikudaginn og þá verð ég búin með sálfræðina..
hressandi að detta í 3ja ára nám fyrir forvitnissakir!

02 apríl 2008

Veðmál!!


Hver vill veðja við mig að hann Paul Mc sé silfurhærður undir brúna makkanum?
Maðurinn er orðinn 65..spáið í það..